Hádegishlé · opnum aftur kl. 13:00

Neyðarþjónusta allan sólarhringinn 772 4050 Fjarhjálp
497 4050 Panta internet

Internet Ljósleiðari fyrir heimili

Ljós alla leið heim.

Ljósleiðari með allt að 1.000 Mb/s hraða á 9.990 kr. á mánuði. Línugjaldið er innifalið – og þú ræður hvort netbeinir, heimasími og farsími fylgja með.

Vinsælt

Ljósleiðari

1.000Mb/s

9.990 kr. á mánuði

Línugjald innifalið

01 Pöntun

Panta internet

Veldu það sem á að fylgja, segðu okkur hver þú ert og hvert netið á að fara. Við sjáum um framhaldið.

Pakkinn þinn Skref 1 af 3

Viltu netbeini með?

Um þig Skref 2 af 3
Hvert á netið að fara? Skref 3 af 3

02 Uppsetning

Hvað tekur langan tíma að fá ljósleiðara?

1–3 dagar

Vanalega. Við reynum að klára þetta eins fljótt og kostur er.

  • Strengur frá Mílu

    Þá ættum við að geta klárað þetta samdægurs.

  • Strengur frá Ljósleiðaranum

    Þetta gæti dregist um 2–3 daga, en í flestum tilfellum getum við klárað þetta samdægurs.

03 Sími og sjónvarp

Bættu síma við netið.

Netvöktun selur heildstæðar fjarskiptalausnir. Bættu heimasíma, farsíma og krakkaáskrift við netið.

+1.990 kr./mán.

Heimasími

Ótakmörkuð símtöl frá Íslandi til 40 landa, í alla farsíma og heimasíma.

Þú notar gamla heimasímann áfram og tengir hann einfaldlega við netbeininn.

+2.490 kr./mán.

Farsími

10 GB net í símann, þar af 8 GB í EES-löndunum án aukakostnaðar, og ótakmörkuð símtöl frá Íslandi til 40 landa.

Þarftu meira? 100 GB pakki á aðeins 2.990 kr.

18 ára og yngri

Krakkaáskrift

Ótakmarkaðar mínútur og SMS á Íslandi og í Evrópu (EES), með 500 MB netnotkun innanlands. Í boði með ótakmörkuðu heimaneti fyrir allt að fjögur númer.

Við lokum fyrir netið þegar gagnamagnið klárast, svo það er engin hætta á rukkun fyrir umframnotkun.

Myndlykill 2.200 kr./mán.

Sjónvarp

Yfir ljósleiðarann er hægt að fá háskerpusjónvarp frá Vodafone og Símanum. Gjald vegna sjónvarpsþjónustu er innheimt af þeim.

Eða skilaðu myndlyklinum og horfðu á sjónvarpið fyrir 0 kr. með Apple TV.

04 Hraði

Hvað þýðir 1.000 Mb/s?

Dragðu sleðann og sjáðu hvað niðurhalið tekur langan tíma á ljósleiðara, miðað við hægari tengingar.

50 GB

1.000 Mb/s · ljósleiðari hjá Netvöktun

6 mín. 40 sek.

100 Mb/s

1 klst. 6 mín.

50 Mb/s

2 klst. 13 mín.

Reiknað miðað við fullan hraða tengingar. Raunhraði fer eftir búnaði, þráðlausu neti og álagi.

05 Fyrirtæki

Ertu með fyrirtæki?

Fyrirtæki geta fengið mjög góð kjör hjá Netvöktun, en ekki er víst að verðskráin sé sú sama og hjá einstaklingum. Það ræðst aðallega af heimilisfangi, stærð gagnatenginga, búnaði og þjónustustigi.

Almenna reglan er að tengja fyrirtækjanet ef heimilisfangið er skráð sem atvinnuhúsnæði. Heyrðu í okkur – við skoðum þarfir ykkar, veitum faglega ráðgjöf og gerum okkar besta til að bjóða fyrirtækjum betra verð.

Fá tilboð fyrir fyrirtæki

Heimtaugin

Frá Mílu og Ljósleiðaranum

  • Öflugri heimtaugar með meiri þjónustu
  • Forgangur ef upp kemur bilun
  • Varaleiðir ef strengur slitnar
  • Öruggara samband

Þjónustan

Frá Netvöktun

  • Betri búnaður
  • Öflug vöktun á búnaði og gæðum tengingar
  • Forgangur í neyðarþjónustu

06 Spurt og svarað

Algengar spurningar

Finnurðu ekki svarið? Þjónustuborðið svarar í síma 497 4050.

Heimasími

Get ég notað gamla heimasímann minn áfram?

Já, þú tengir hann einfaldlega við netbeininn.

Hvað kostar að hringja úr heimasímanum?

Heimasíminn er ótakmarkaður frá Íslandi til 40 landa. Símtölin gilda í alla farsíma og heimasíma þegar hringt er frá Íslandi, en eiga ekki við um símtöl í yfirverðsnúmer, þjónustunúmer eða gervihnattasíma.

Löndin í pakkanum eru: Austurríki, Ástralía, Bandaríkin, Belgía, Bretland, Búlgaría, Danmörk, Eistland, Finnland, Frakkland, Færeyjar, Grikkland, Holland, Hong Kong, Indland, Írland, Ítalía, Kanada, Kína, Króatía, Kýpur, Lettland, Liechtenstein, Litháen, Lúxemborg, Malta, Noregur, Portúgal, Pólland, Rúmenía, Singapúr, Slóvakía, Slóvenía, Spánn, Sviss, Svíþjóð, Taíland, Tékkland, Ungverjaland og Þýskaland.

Farsími

Hvað kostar að hringja úr farsímanum?

Þú færð ótakmörkuð símtöl frá Íslandi til 40 landa – sömu landa og í heimasímanum. Símtölin gilda í alla farsíma og heimasíma þegar hringt er frá Íslandi, en eiga ekki við um símtöl í yfirverðsnúmer, þjónustunúmer eða gervihnattasíma.

Hvað er mikið gagnamagn í farsímanum?

Þú færð 10 GB net í símann og 8 GB af netinu geturðu notað í EES-löndunum án aukakostnaðar. Þegar þú hefur klárað þessi 10 GB borgarðu 0,75 kr. ofan á hvert MB sem er eftir í netáskriftinni. Þú borgar síðan 990 kr. fyrir hvert byrjað GB þegar allt gagnamagnið í netáskriftinni er búið, bæði á Íslandi og í EES-löndunum.

Athugaðu að gagnamagnið sem þú færð í EES-löndunum er ekki viðbótargagnamagn heldur hluti af öllu gagnamagninu þínu.

Er hægt að fá stærri gagnamagnspakka?

Já. Við bjóðum upp á farsíma með 100 GB pakka á aðeins 2.990 kr.

Eruð þið með útlandapakka sem nær til fleiri landa?

Já, með útlandapakkanum geturðu hringt í 100 mínútur til yfir 100 landa. Mínúturnar gilda bæði í farsíma og heimasíma og eiga við um símtöl frá Íslandi.

Löndin í pakkanum eru: Albanía, Alsír, Ameríska Samóa, Andorra, Angóla, Argentína, Armenía, Arúba, Aserbaísjan, Bahamaeyjar, Bandarísku Jómfrúaeyjar, Bangladess, Barein, Belís, Bermúda, Bosnía og Hersegóvína, Botsvana, Bólivía, Brasilía, Brúnei, Bútan, Caymaneyjar, Dóminíka, Dóminíska lýðveldið, Egyptaland, Ekvador, El Salvador, Erítrea, Eþíópía, Filippseyjar, Franska Gínea, Franska Pólýnesía, Gana, Georgía, Gíbraltar, Grænland, Gvadelúpeyjar, Gvam, Gvæjana, Haítí, Hollensku Antillaeyjar, Hondúras, Hvíta-Rússland, Indónesía, Írak, Íran, Ísrael, Jamaíka, Japan, Jemen, Kambódía, Kasakstan, Katar, Kenía, Kirgisistan, Kosta Ríka, Kólumbía, Kósovó, Kúveit, Laos, Líbanon, Makaó, Makedónía, Malasía, Martiník, Mayotte, Máritíus, Mexíkó, Mjanmar, Moldóva, Mongólía, Montserrat, Mónakó, Mósambík, Namibía, Nepal, Nígería, Níkaragva, Nýja-Kaledónía, Nýja-Sjáland, Pakistan, Palestína, Panama, Paragvæ, Perú, Púertó Ríkó, Réunion, Rússland, San Marínó, Sankti Kitts, Sankti Lúsía, Sankti Martin, Sádi-Arabía, Serbía, Singapúr, Síle, Srí Lanka, Suður-Afríka, Suður-Kórea, Suður-Súdan, Súdan, Súrínam, Svartfjallaland, Svasíland, Sýrland, Taíland, Taívan, Túrkmenistan, Tyrkland, Úkraína, Úrúgvæ, Úsbekistan, Venesúela og Víetnam.

Krakkaáskrift

Hvað er krakkaáskrift?

Krakkaáskrift er í boði með ótakmörkuðu heimaneti fyrir 18 ára og yngri. Sami greiðandi þarf að vera að heimanetinu og krakkaáskriftinni. Í boði fyrir allt að fjögur númer.

Í krakkaáskriftinni er frítt að hringja og senda skilaboð á Íslandi og þegar þú ert í Evrópu (EES). Athugaðu að opið er fyrir SMS til útlanda og í gjaldskyld númer og greitt er fyrir símtöl og skilaboð utan EES-landa.

Við lokum fyrir netið í símanum þegar gagnamagnið klárast og erlendis er ávallt lokað fyrir netsamband. Það er því engin hætta á rukkun fyrir umframnotkun á gagnamagni.

Hvað fá krakkar mikið gagnamagn?

Krakkaáskrift fylgir 500 MB netnotkun innanlands.

Er hægt að fá stærri krakkaáskrift?

Já. Við bjóðum upp á 5 GB krakkaáskrift á 990 kr. Ef þú þarft meira en 5 GB er í boði að kaupa venjulega áskrift.

Sjónvarp

Hvernig fæ ég sjónvarp yfir ljósleiðara?

Yfir ljósleiðarann er hægt að fá háskerpusjónvarpsþjónustu frá Vodafone og Símanum. Grunngjald er greitt mánaðarlega fyrir leigu á myndlyklum. Innifalið í grunngjaldinu eru allar fríu stöðvarnar, efni í opinni dagskrá á Stöð 2 og Sjónvarpi Símans og Leigan, þar sem hægt er að leigja kvikmyndir og sjónvarpsþætti allan sólarhringinn.

Mánaðargjald háskerpu- og 4K-myndlykils er 2.200 kr. Gjald vegna sjónvarpsþjónustu er innheimt af Símanum eða Vodafone og myndlyklar eru afhentir í verslunum þeirra.

En sjónvarp yfir ljósnet?

Yfir ljósnet er hægt að fá háskerpusjónvarpsþjónustu frá Símanum og tengja allt að fimm myndlykla. Grunngjald er greitt mánaðarlega fyrir leigu á myndlyklum Símans og veitir aðgang að öllum opnum innlendum stöðvum, SíminnBíó, Karaoke og íslenskum útvarpsstöðvum.

Mánaðargjald myndlykils er 2.200 kr. og styður hann háskerpu og 4K. Myndlyklar eru afhentir í verslunum Símans og gjald vegna sjónvarpsþjónustu er innheimt af Símanum.

Get ég sleppt myndlyklinum og notað Apple TV?

Já. Þú getur skilað myndlyklinum og horft á sjónvarpið fyrir 0 kr. með Apple TV. Þá geturðu horft og hlustað frítt á RÚV með RÚV-appinu, horft á þúsundir þátta og kvikmynda með áskrift að streymisveitum, sótt sjónvarpsöpp íslensku stöðvanna og haft aðgang að milljónum myndbanda á YouTube.

Viltu skipta yfir til okkar?

Ljósleiðari á 9.990 kr. á mánuði með línugjaldi inniföldu. Ef þú ert nú þegar með ljósleiðara tekur þetta vanalega 1–3 daga.